CBD olía í lúgu á Leirunesti og AK-inn.

Nú fyrst er CBD olía fáanleg í lúgu á Akureyri.

Birta CBD heldur áfram að vera leiðandi afl í lúguvæðingu CBD sölu á íslandi. Eftir frábært samstarf við Aktu Taktu á höfuðborgarsvæðinu höfum við ákveðið að færa út kvíarnar og hefja sölu á CBD olíum í gegnum lúgu á höfuðstað norðurlands, Akureyri.

Við höfum samstarf með Leirunesti og AK-inn þar sem olíurnar okkar verða til sölu fyrir bæði gangandi og keyrandi viðskiptavini. Staðirnir eru tveir af hornsteinar bæjarins, tveir turnar á sitthvorum endanum. Á dögunum fóru þeir Eiki og Gauti með fyrstu vörurnar í lúgurnar en Eiki vill einmitt meina að hann sé einn af stærstu viðskiptavinum AK-inn og Leirunestis.

„Ég kem svona 2-3 í viku við á AK-inn svo það var bara borðliggjandi að heyra í þeim hvort það væri ekki einhver fótur fyrir því að bjóða upp á olíurnar okkar hérna.”

Til sölu verður vörulínan Ósk í 10ml einingum. Allar óskirnar þrjár, sú venjulega og einnig jarðarberja og bláberjabragð.

„Akureyri hefur alltaf átt sérstakan sess í hjarta mínu. Ég bjó náttúrulega fyrstu árin hér á Akureyri og eftir það kom ég reglulega til ömmu og afa svo ég á ljúfar minningar héðan auk þess sem besti tónleikastaður landsins, Græni Hatturinn er hér líka. Maður er pínu að loka hringnum núna á Leirunesti því það var alltaf stoppað í pylsu hér í heimsóknum þegar ég var lítill.”

Sagði Gauti meðan hann var að koma vörunum fyrir í Leirunesti. 

Við tækifærið voru þeir Róbert og Markús á Leirunestist og AK-inn kátir.

„Það er gaman að geta verið fyrsta fyrirtækið í bænum sem býður upp á CBD olía í lúgu. Það er bara kjörið tækifæri til að breikka okkar vöruúrval og auka þjónustuna við bæjarbúa og okkar kúnna.“

Einnig geta norðlendingar verslað CBD olíur í Braggaparkinu, Laufásgötu 1.